VG gera ekkert gagn og eru bara til bölvunar

Menn rifja nú upp, er einn stingur af, að ekkert liggur eftir þá!*

VG státa sig þó af því að leyfa enn meiri fjölda­dráp ófæddra barna; Kata for­maður ger­sam­lega ósmekk­leg og sið­laus í því efni, vill (eins og Kína­kommar, Hillary og Obama) engin tíma­mörk til fæðingar!!

* Ekkert liggur eftir þá (þótt kjörtímabilið sé svo gott sem hálfnað) nema það sem er þjóðinni helzt til áþjánar og bölvunar:

óbærilegar (er tímar líða) skuldbindingar vegna lofts­lags­trúar­vitleysu,

alger ríkisvæðing heil­brigðis­kerf­isins og stefnt að eilífum vandræðum þar og langtum verri þjónustu en úti í Skandinavíu,

ennfremur gerðu VG þau hrossakaup við valdfreka Valhallar­forystuna og Framsókn að hleypa Þriðja orku­pakkanum í gegn, kjörum almennings og rekstrar­aðstæðum atvinnu­fyrirtækja til bölvunar, þegar sæstreng­urinn kemur óhjá­kvæmilega, og til spillingar á náttúru Íslands vegna grófra risa-vindorkugarða,

auk þess þrýsta VG á um stór­felldan inn­flutn­ing á fólki frá Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku (það er í samræmi við stefnuskrá þeirra, og afleiðingin verður umfram allt stórfjölgun múslima hér, í þúsunda tali),

fósturdeyðingaöfgarnar munu svo stefna út í hægfara útrýmingu þjóðarstofnsins.

   

Skoðið myndina!

Þótt meirihluti alþingismanna hafi ákveðið 13. maí sl. að það væri bara í góðu lagi að drepa ófætt barn til loka 22. viku meðgöngu af hvaða ástæðu sem er og án þess að þurfa að nefna neina ástæðu (!), þá lítur 19 vikna gamalt fóstur svona út í alvöru (og nagar þumal­fingur sinn vísvitandi og með undirbúningi):

Myndaniðurstaða fyrir fetus sucking thumb

(Mynd: Lennart Nilsson)

Spurt er á dreifiblaði brezkra lífsverndarmanna:

 

If he is not alive,

why is he growing?

If he is not a human being,

what kind of being is he?

If he is not a child,

why is he sucking his thumb?

If he is a living, human child,

why is it legal to kill him?

 


mbl.is „Alltaf leiðinlegt þegar leiðir skilja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband