Einhliða drápsherferð alræðissinna islamismans

Hver eru dæmin um drápsárásir Gyðinga á nazista 3. ríkisins? Engin. Banatilræði Gyðings við þýzkan sendi­fulltrúa í París var eina undan­tekningin, sem þá einmitt sannar regluna. Hvar eru dráps­árásir krist­inna manna á 50 milljónir múslima í Evrópu? HVERGI.

Í báðum tilvikum var og er illræðis­viljinn allur hjá fulltrúum alræðisaflanna: nazistunum, sem frömdu sín þjóðamorð á Gyðingum og öðrum, blásaklausu fólki, og hjá fylgismönnum Ríkis islams, sem fremja hvert fjöldamorðið eftir annað, eins mörg og þeir komast yfir, á jafn-blásaklausu fólki.

Hvað er til ráða?

Ég hef lagt það til, að ríkisstjórnir í Evrópu geri ISIS og öðrum illræðissamtökum það ljóst, að meðan þau halda áfram hryðjuverkum gegn almennum borgurum, verði lokað með öllu fyrir straum múslima inn í álfuna. Þetta er raunar það, sem meirihluti Evrópumanna vill.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband