Næsta augljóst er, af orðbragði og hatursblandinni hugsun Gunnars Smára Egilssonar gagnvart dr. Hannesi Gissurarsyni, í tilvitnunum til orða GSE í þessari samantekt Hannesar: Haldið til haga: Skrif Gunnars Smára, að þannig skrifa helzt ekki aðrir en níðhöggvar eða varmenni, nema hvort tveggja sé.
Gunnar ætti að biðja prófessorinn opinberlega afsökunar á aumlegu níði sínu, sem dæmir engan harðar en hann sjálfan. Það sama á við um ófáar hlálegar ritvillur Gunnars Smára. Svo þykist hann geta gagnrýnt hálærðan mann, DPhil. frá Oxford-háskóla og höfund fjölda bóka og annarra rita!
Ef "hugmyndafræðingur" Sósíalistaflokksins er ekki af hærri standard en þessum, þá er ekki á góðu von úr þeirri áttinni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)