Færsluflokkur: Ferðalög

Fljótavík og Hornstrandir -- þvílík náttúrufegurð

Þetta voru stórkostlegar Ferðastiklur hjá Láru Ómarsdóttur og föður hennar Ragnarssyni í Sjónvarpinu í kvöld, um Fljótavík, Sléttuhrepp og Hornstrandir. Stórfenglegt landslag, kaldranalegt og ægilegt, en einnig með allt aðra, sumarlegri ásján, með fögrum veðurstillum á og í kringum vatnið og blómskrúði miklu. Ekki undarlegt að fólkið þaðan sækir enn í staðinn sem það yfirgaf fyrir rúmum 70 árum, en vill hvergi fremur vera á sumrin. Og skemmtilegt var rabb þeirra feðgina við fólkið, ómissandi líka innhlaupin hans Ómars: hresssilegar sögur frá fyrri tíð af glæframönnum í loftinu, bandarískum og honum sjálfum. Hafa fáir frásagnargáfu á við hann, en dóttirin stóð sig líka fantavel í afburðagóðum þætti.


Reykhólahreppur á að gefa eftir fyrir hagsmunum Vestfirðinga

Teitsskógur, vaxinn kjarri, á ekki að vega þyngra en brýn nauð­syn Vest­firð­inga á samgöngu­bót. Endur­nýja þarf þjóðveginn með sem hag­kvæm­ustum hætti og stytta ferða­tíma. Eitt sveitar­félag á ekki að sitja yfir hlut annarra mun fólks­fleiri. Gefi Reyk­hóla­hreppur ekki eftir, má þá alltaf reyna löggjöf um málið.


mbl.is Biðla til sveitarstjórnar Reykhólahrepps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsagt mál að menn borgi fyrir sig!

Hundraðkall er ekki neitt neitt. Mér þykir sjálf­sagt, að þeir ferða­manna- og veit­inga­staðir, sem mikið mæðir á, komi upp ein­földu tæki utan á kló­sett­klef­um, þar sem menn borga fyrir notk­unina. Ekki er hægt að ætlast til að þessir staðir gefi hundruð kíló­metra af klósett­pappír árlega, auk manna­halds­ins við þrif þar og endur­nýjun -- eða vilja menn frekar, að þrifin mæti afgangi?

Svona græjur utan á klósett­klefum var maður farinn að sjá í Bret­landi og á megin­landinu fyrir ára­tugum! Af hverju eru Íslend­ingar stundum svona tregir til að finna upp hjólið?


mbl.is Rukka fyrir aðgang að salernum hjá N1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikans mynd?

 Úr hjólreiðaferð eftir ljósaskipti ... 

 

Þú rennur áfram hjóls á fráum fáki,

unz fram undan hin dimma brautin er,

og þar þú greinir þann, sem líkur stráki

þreyttum utan vegar bíður hér,

unz sérðu loks það skýrt, sem blekking skáki :

að skuggi var hann einn af sjálfum þér!


Það flæðir undan Degi B. eins og sýnir sig í Gallupkönnun

"Miklubraut strax í stokk!" hafði hann sagt áður. Og í kvöld bætti þessi apaköttur við: "Borgarlínu strax!" ---Hvað heldur hann að hann sé, og hver heldur hann að við séum, fífl eða hvað? Hversu óralengi var hann með kannski 20 sinnum ódýrari framkvæmd: breytingarnar á Hverfisgötu -- hve MÖRG ÁR tóku þær? STRAX HVAÐ?!!!  yell laughing

Og þessar framkvæmdir á Miklubraut, mestu stofnæðinni, myndu senda alla þá meginumferð út á aðrar brautir á meðan, á Sæbraut, Suðurlandsbraut, Bústaðaveg og á aðrar götur eins og Háteigsveg, Skipholt o.s.frv. og í gegnum íbúðahverfin og ALLT Í HNÚT klukkustundir á degi hverjum í nokkur ár, tilvalið sem "RÖK" fyrir því að menn verði að hætta við "einkabílinn" og grípa hjólið og strætó í staðinn!!! (um það síðastnefnda mál og hjáfræði-bábiljur Helgu Völu og Dagsmanna, sjá hér: https://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/2217250/ )


mbl.is Veður ætti ekki að hafa áhrif á kjörsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafndægur á vori

Nú er horfin næturtíð,

nú eru vorjafndægur, 

orti Gunnar J. Straumland á Boðnarmiði í gær og kvað meira að.

Jafndægur á vori og hausti kallast alþjóðlega (og latneska!) heitinu equinox. Í okkar hugtaki er dagurinn, í því latneska nóttin (nox, ef. noctis, sbr. nocturnal og nocturna; og equi er vitaskuld samstofna við e. equal og fr. égal -- og af því síðarnefnda dregið það hrollvekjandi orð égalité!).

Þessi jafndægur voru víst í hápunkti kl. 4.16 í gær. Í u.þ.b. tvær vikur fyrir og eftir vorjafndægur lengist dagsbirtan um ca. 7 mínútur daglega, en þegar kemur að sumarsólstöðum, eru þær breytingar ekki nema nokkrar sekúndur á hverjum sólarhring, eins og um vetrarsólstöður.

En nú er dagurinn jafn nóttinni, húrra fyrir þvísmile


Þvílíkur raðnauðgari - og bar fyr­ir sig ein­mana­leika og ekk­ert fé­lags­líf !!!

Hann tók ungar konur upp í bíl sinn (Bla Bla Car), byrlaði eitur með súkkulaði, nauðgaði og ber þetta fyrir sig sem afsökun! Sjá all-svakalegan fréttar­tengil Mbl.is!

Eru sjö ár ekki vægur dómur fyrir svona glæpahund? Fórnarlömbin gætu verið margir tugir, allt að 50! (hann hefur játað á sig átta ólyfjunar-nauðganir og er flestum líklegri til að ljúga af sér sökum).

Gelding er viðbótarrefsing sem nú er beitt í Póllandi og gæti haft mikinn fráfælingarmátt. Hvaða karl­rembusvín vill ganga um sem lands­kunnur geldingur?!


mbl.is Byrlaði þeim ólyfjan og nauðgaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhvers staðar verða mörkin að vera

Gott á hrokafullt kvikindið að dúsa í fanga­geymslu á Sel­fossi í nótt, þar sem hann ók ekki aðeins á 194 km hraða um Suðurland og fram hjá lögreglu sem reyndi að stöðva hann, heldur er hann jafn­framt grunaður um akst­ur und­ir áhrif­um fíkni­efna. Útlendingur átti í hlut.


mbl.is Á 194 km hraða og neitaði að stoppa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eine Strofe für Anna aus Frankfurt a/M

 

Die Anna kam nicht, um mich zu finden;

es ist mir doch mit ihr zu sprechen gelungen.

Ich hätte so gern für sie gesungen,

eine ehrliche Freundchaft mit ihr zu verbinden

auf Grund ihres Lächelns, so süß und heiß,

für mich wie ein wahrhaftig Siegerpreis!

q27iii17


Enn leynist töggur og fífldirfska í nokkrum karlmönnum þessa heims gagnvart þeim sem þeir gera hosur sínar grænar fyrir

Margt gerir karlpeningurinn fyrir kven­pen­inginn. Hér er einn sem sýndi vask­legt hug­rekki, tók áskor­un stúlku að stökkva út í krókó­dílaá, tókst jafn­vel eftir að verða bit­inn að kýla krókó­díl­inn í höf­uðið og losa sig frá honum. Var þetta átján ára gamli Ástr­alinn Lee de Paauw, sem gerði þetta til að ganga í aug­un á brezkri ferða­stúlku, þeirri sem manaði hann til að stökkva! Áður hafði hann verið að monta sig af því á hót­el­inu, sem hann var á, að hann gæti synt í ánni.

  • Hann seg­ist vera hepp­inn að hafa kom­ist á lífi úr Johnst­one-ánni í bæn­um Inn­is­fail. [... En stúlkan] seg­ir að blóð hafi verið út um allt og hafi ungi maður­inn öskrað lengi.
  • Stúlk­an viður­kenn­ir að hún hafi manað pilt­inn til að stökkva út í en seg­ist ekki hafa haldið að hann myndi láta verða af því. 

„Ég fékk núm­erið hjá henni,“ sagði hann mont­inn í sam­tali við ástr­alska út­varps­stöð í gær. „Ég gerði þetta fyr­ir hana.“ (Mbl.is segir frá)

Það er þá enn til gömul riddara- og karlmennska í einhverjum mönnum þrátt fyrir slævandi áhrif af völdum kvenna­bylting­arinnar. En augljóslega hefur þetta ýmsar hættur í för með sér:

  • Sjúkra­flutn­inga­menn sem komu að slys­inu segja að pilt­ur­inn sé hepp­inn að vera á lífi. 

Spurning hvort hann hafi svo fengið einn fingurkoss og klapp á "meiddið" að launum! 


mbl.is Sýndi sig fyrir stúlku og varð fyrir krókódílaárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband