Færsluflokkur: Vísindi og fræði
Þess er spurt hér vegna efstu greinar þar í nótt: Andstyggilegu konurnar hans Trump" (sic). Þar er notkun Trumps á orðinu "nasty" lögð út sem svo, að hann kalli 6 konur "andstyggilegar". En ég tel rangt þýtt!
Orðið nasty hefur ýmsar merkingar. T.d. er það notað um lykt og um vistarverur: a nasty room, a nasty smell ("ógeðslegur, andstyggilegur, viðbjóðslegur" er þýðingin í Ensk-íslenskri orðabók Arnar og Örlygs). Þá getur það í 2. lagi verið notað, í merkingunni klúr, ógeðfelldur, sóðalegur, um hugarfar, orðbragð eða ritverk (a nasty mind, nasty language, nasty literature). Í 3. lagi um náttúruviðburði og slys, í merkingunni slæmur, alvarlegur (a nasty storm/cold/rain; a nasty accident. Í 4. lagi um örðug mál viðfangs eða torveld: a nasty question; a nasty business (leiðindamál) og í 5. og síðasta lagi í merkingunni illgjarn, illkvittinn eða illkvittnislegur: make a nasty remark; a nasty trick, óþokkabragð. (Allt skv. sömu orðabók.)
Í ummælum Trumps er nokkuð ljóst, að þar kemur merkingarsamhengið nr. 1 hér ofar ekki við sögu, heldur ekki nr. 3, naumast nr. 4, en einna helzt nr. 2 og 5.
Fráleitt tel ég, að hann hafi almennt verið að lýsa konunum sex sem andstyggilegum sem slíkum, heldur er nokkuð ljóst af samhenginu, þar sem það kemur fram, að hann er þá yfirleitt að tala um ummæli þeirra eða orðbragð. Það á t.d. við um Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, sem hafði sagt Trump "fullan kvenhaturs", en þau orð mega vel teljast rætin eða illkvittnisleg.
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, neitaði að ræða við Trump um mögulega sölu á Grænlandi, og brást hann við þeim skilaboðum með því að kalla þau "nasty" eða illkvittin (fremur en andstyggileg).
Vegna yfirlýsinga Hillary Clinton um að "hún myndi hækka skatta á þá launahæstu til að leggja meira fé í félagslegan stuðning" brást Trump illa við með því að kalla hana such a nasty woman, það útlegg ég sem ekki almennt andstyggilega, heldur sem illgirnislega neyta færis til að skattleggja vissan þjóðfélagshóp. Þá sagði hann þingkonuna Harris hafa verið virkilega "nasty" (illskeytta eða illkvittnislega) í spurningu sinni til Barrs, dómsmálaráðherra alríkisins; en ekki var það almenn fordæming hans á henni sem andstyggilegri manneskju!
Eins var um Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, þegar hún brást "nasty og hefnigjörn" við nýlegum ummælum forsetans um þrjár konur af blönduðum uppruna. Mbl.is segir þar reyndar ranglega frá "ummælum forsetans þar sem hann sagði fjórum þingmönnum Demókrataflokksins að fara heim," en það gerði hann ekki, heldur hvatti hann þær til að leita til síns upprunalands, skoða þar ástandið (ömurlegt í efnahags- og réttlætismálum) og koma svo til baka, klyfjaðar betri þekkingu en þær áður höfðu og hafandi þar með ástæðu til að meta betur bandarískt samfélag en þær gerðu fram að því.
En ljót og illkvittin ummæli vinstri manna og "frjálslyndra" um Trump forseta gætu hins vegar fyllt heilu bækurnar, ef ekki bókasöfn, og hafa margir farið geyst í ofurmælum, og dyggilega er vitnað í þá í "frjálslyndum" fjölmiðlum, jafnvel daglega!
![]() |
Andstyggilegu konurnar hans Trump |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 05:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.6.2019 | 17:18
Takmarkaður árangur og brigðul vindorka dregur úr virkni og hagkvæmni vindmyllu-virkjana
Grein, sem hin glögga Vala Andrésdóttir Withrow kom á framfæri á Facebók Glópaláns, er umhugsunarverð, þótt hér verði ekki dæmt um gildi þessa á Íslandi:
Gone with the Wind: Inefficiency and Hazardous Nature of Wind Energy Impedes Renewable Crusade
Wind energy is infinite, clean, a friend of climate, and the future of our energy sector. That is the green gospel we hear from renewable-obsessed environmentalists and politicians every day.
If wind energy is what they claim it is, why are the economic powerhouses of the world increasingly turning toward fossil fuels and nuclear, not toward wind? If wind is affordable and efficient, as they claim, why does it need subsidies to flourish?
The answers to these questions reveal that wind energy is not what it is portrayed to be.
Intermittent Generation and Hyper-Sensitiveness to Weather
It is a well known fact that wind energy is intermittent i.e., it can generate stable electricity only when the wind speed is at an optimum level. This is known as rated wind speed, which is around 2630 miles per hour, or 1214 meters per second. A little slower, and the generation is inefficient. A little faster, and turbines risk getting damaged.
Energy generation can also be affected by cold weather and storms. This was the case earlier this year when the cold weather from a polar vortex affected wind operation in America´s Midwest, impacting the only season when wind energy generation is optimum there. Besides rendering them incapable of generating electricity, the cold weather also damages the turbines and other parts.
Canada, a country familiar with cold weather limitations of wind, estimates that cold weather accounts for a loss of $85 million USD annually. The loss is attributed to three main factors: accumulation of ice on wind turbine blades, resulting in reduced power output and increased rotor loads; cold weather shutdown to prevent equipment failure; and limited or reduced access for maintenance activities.
The Cost: Loss of Money, Increased Power Prices, and Blackouts
Despite the seasonal variation and no assurance of a stable wind speed, the wind industry has managed to grow rapidly, thanks to the restrictive climate change policies that favor renewables against fossil fuels.
As a result of this blind love for wind energy, countries have lost a lot of money invested into the wind sector. The U.S. Energy Information Agency´s annual energy outlook states that wind (and solar) energy contributed a mere 3 percent of total energy consumption in the U.S. last year, despite consuming a cumulative $50 billion in subsidizes.
Moreover, some territories like Scotland compensate wind energy companies if electricity generated exceeds the demand. The government makes up for the financial loss by increasing the electricity bills of consumers.
Furthermore, the increased cost of generation and transmission has resulted in increased power prices. Environmental commentator Michael Shellenberger noticed that electricity prices have risen dramatically in countries that rely heavily on wind: "Electricity prices increased by 51 percent in Germany between 2006 and 2016 (wind and solar) and over 100 percent in Denmark since 1995 (mostly wind)."
This renewable-driven sharp rise in electricity prices is also observed in numerous states in the U.S. (especially California) that made heavy investments in wind and solar.
The highly seasonal and intermittent nature of renewable electricity means that some countries also run the risk of a complete energy blackout when wind fails. The 2016 blackout in Australia caused by wind energy failure is a classic example.
Hazardous to Birds, Humans, and the Environment
Besides being inefficient and expensive, wind energy has also been found to be hazardous during its manufacturing phase and operational phase.
A generator for a high-end wind turbine requires as much as 4,400 pounds of neodymium-based permanent magnet material. When neodymium is produced, the carcinogenic and radioactive waste is dumped into lakes, making both the water and the surrounding air toxic. It is estimated that seven million tons of waste a year are dumped into a single lake in China, which is the largest producer of neodymium.
Wind turbines are the largest killers of birdlife globally. They have a special liking for raptors and are infamous for adversely affecting many endangered species. An operational wind turbine is a certified bird-killer.
Wind turbine accidents are also becoming increasingly common. In the U.K. alone, hundreds of accidents are reported every year. Globally, thousands of wind structural collapses and related accidents occur annually.
All these factors make wind energy untenable. Even in the best operating seasons, wind has no competitive edge over conventional energy sources.
Some countries are already moving away from wind. Poland aims to scrap all its operational wind factories by 2035. (They´re not farms, by the way. Farms grow plants and animals.) China has refused to approve further wind projects due to their inefficiency and higher costs.
Aside from isolated local applications not yet served by major electric grids, wind has little future in a world moving toward technological finesse in energy generation technologies. Wind makes us rely on a resource that is highly volatile and not under our control, thereby making it unsustainable no matter our advances in turbine technology.
Any hopes of a wind energypowered utopian future are gone with the wind, literally. The wind sector functions solely to feed the pride of renewable crusaders, at taxpayers´ and ratepayers´ expense, and has been a burden to the world that is pushing toward energy development.
Vijay Jayaraj (M.Sc., environmental science, University of East Anglia, England), research associate for developing countries for the Cornwall Alliance for the Stewardship of Creation, lives in Bangalore, India.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.5.2019 | 11:45
Fóstureyðingar eru tvöfalt stjórnarskrárbrot
Saklaus, ófædd börn eiga betra skilið en það, að við skellum skollaeyrum við þjáningu þeirra. Það hefur aldrei þótt hetjulegt að ráðast á minni máttar, sízt að útrýma þeim af grimmd, já, grimmd, því að þetta gerist alls ekki sársaukalaust fyrir fóstur eldra en 2ja-3ja mánaða, og 20 vikna eru þau komin með skynnema um allan líkamann og tengingar þeirra upp í heila.
Ýmsar drápsaðferðirnar eru langdregnar, t.d. saltvatnsaðferðin (saline abortion) sem er svíðandi bæði innvortis í fóstrinu (og veldur krampaviðbrögðum) og brennir hörundið, þannig að þau deyja á rúmum klukkutíma og koma svo út, með andvana fæðingu um sólarhring seinna, með bleika, sviðna húð.
Þetta er í beinni andstöðu við 68. gr. stjórnarskrárinnar, sem bannar blákalt allar pyndingar. Eins er bann við dauðarefsingu hér í 69. gr. sömu stjórnarskrár! -- https://www.althingi.is/lagas/136a/1944033.html
Hér er 21 viku gamalt fóstur:
Það er enn opið á það (til og með 17. maí) að skrá sig á undirskriftalistann á vef Þjóðskrár: Til varnar lífi ófæddra, sjá hér (smellið!): https://listar.island.is/Stydjum/39 -- Þar hafa nú (8/5 kl. 11.50) 644 manns skráð sig á listann. Til viðbótar hafa 433 skrifað undir sömu áskorun á lausum undirskriftablöðum.
![]() |
Greiða ekki atkvæði fyrr en í næstu viku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.1.2019 | 17:50
Dr. Hannes H. Gissurarson farinn að læra af frægasta skólaspekingnum
Já, nú er hann tekinn til við að læra að feta meðalveginn hjá Thómasi okkar frá Aquino! https://hannesgi.blog.is/blog/hannesgi/entry/2228973/
Það skal þó tekið fram, að ekki merkir þetta, að Thómas hefði skrifað upp á allt hjá Hannesi eða hjá öðrum fræðimanni, sem hann dáist að, Lysander Spooner. Hannes fær t.d. ekki stuðning Thómasar við vændi og aðra ósiðlega hegðun, enda skaðar vændi ekki aðeins þau tvö, sem taka þátt í því, heldur aðra í framhaldi af því, með kynjúkdómasmiti og útbreiðslu slíkra sjúkdóma, með upplausn hjónabanda og fjölskyldna og með misnotkun kvenna, jafnvel mansali.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2018 | 04:55
Með bloggarabrag
Steinunn grefur upp pípu og pest.
Prúður Ómar vill þókknast öllum.
Pírata skammar Páll fyrir rest;
párað er margt hér bloggs á völlum.
Halldór gegn villtum hálfvitum berst.
Hannes var eitthvað í Bakú að þylja.
Lengi hér Fullveldisvaktin verst
vondslegum gegn, sem ræna´ okkur vilja.
Styrmir er þekktur hér, stór í lund,
stjórnmálamennina typtar með gleði,
formanninn Bjarna hirtir sem hund,
haldi´hann til Brussel með landið að veði.
Gústaf Adolf er góður og gegn,
gagnast hann þjóðinni, fjarri þó landi.
Sæmi´ er svo einn og Svenni ... Hver þegn
satt skal hér mæla og trúr hans andi!
Rúnar á garðinn ræðst nú helzt
ríkis þess sem glatt mun ei falla.
Margt hér á bloggið mannval velst,
Magnússon Jón, en Nonni? Varla!
Verk- er hér fróður vinurinn snjall,
víst jú hann Bjarni, og Gunnar æðir
Brussel á móti og boðar þess fall.
Bloggið hér margt um heiminn fræðir!
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 06:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2018 | 06:51
Jafndægur á vori
Nú er horfin næturtíð,
nú eru vorjafndægur,
orti Gunnar J. Straumland á Boðnarmiði í gær og kvað meira að.
Jafndægur á vori og hausti kallast alþjóðlega (og latneska!) heitinu equinox. Í okkar hugtaki er dagurinn, í því latneska nóttin (nox, ef. noctis, sbr. nocturnal og nocturna; og equi er vitaskuld samstofna við e. equal og fr. égal -- og af því síðarnefnda dregið það hrollvekjandi orð égalité!).
Þessi jafndægur voru víst í hápunkti kl. 4.16 í gær. Í u.þ.b. tvær vikur fyrir og eftir vorjafndægur lengist dagsbirtan um ca. 7 mínútur daglega, en þegar kemur að sumarsólstöðum, eru þær breytingar ekki nema nokkrar sekúndur á hverjum sólarhring, eins og um vetrarsólstöður.
En nú er dagurinn jafn nóttinni, húrra fyrir því
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2017 | 13:12
Félagsstofnun stúdenta stefnir á 600 nýjar íbúðir, áherzlan á mjög smáar stúdíóíbúðir
Þetta er frábær stefna; 20 fm íbúðir nægja nefnilega meirihluta háskólanema. Nú á FS yfir 1200 íbúðir. Almennt hafa þær aðgang að stærra sameiginlegu rými, í veizlur o.s.frv.
Guðrún Björnsdóttir var fyrir hönd FS í fróðlegu viðtali á Rás 1 um kl. 12.50-13.08 í dag í þættinum Samfélaginu. Það er ekki hægt annað en að óska Félagsstofnun stúdenta til hamingju með árangurinn hingað til og áætlunina um að reisa 600 nýjar, hagkvæmar íbúðir á næstu árum. Þetta kemur vel til móts við þann þorra stúdenta, sem hefur takmörkuð fjárráð til að fara út á almenna leigumarkaðinn, eins og ástandið er þar nú, á okuröld í húsnæðismálum!
Viðtal tók ég við Ingólf Hjartarson, þá nýskipaðan framkvæmdastjóra FS, fyrir Vökublaðið (sat þar í ritnefnd), mig minnir á haustönn 1972, og var það heil baksíða, að miklu leyti tileinkuð stórhuga framkvæmdamálum FS á þeim tíma, þ.e. fjölbýlishúsunum við Suðurgötu og í nærliggjandi hverfi.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.2.2017 | 21:53
María Antoinette í fallöxinni 1793
Maria Antonia, f. erkihertogynja af Austurríki 1755, 15. barn Maríu Theresu keisaraynju og Franz I keisara, varð kona Lúðvíks XVI Frakkakonungs. Byltingarmenn dæmdu þau til dauða. Seint verður upp á hatrið logið.
Æ, fátækir kotungar kyntu til báls
og krafan um súpuna´ og brauðin!
unz við og sjálf börnin vorum ei frjáls ...
skítt veri með hallarauðinn!
Ég fann, að það kom eitthvað kalt við minn háls ...
Ó, kvölin og höggið og dauðinn!
JVJ, á göngu að kveldi 13.2. 2017
16 ára í veiðiklæðnaði, eftirlæti móður sinnar
Mannsefni hennar, krónprinsinn, og tvítug hún
Hér er hún fangi í Musteristurninum, um 1792.
Vísindi og fræði | Breytt 18.2.2017 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2017 | 00:09
Furðuleg kvenréttindi
Róttækur blaðamaður, Árni Matthíasson, reit pistil á leiðarasíðu Mbl. í gær og gaf sig út fyrir að vera varnarmaður kvenna, talaði m.a. um "kynheilbrigðisrétt" þeirra og virtist jafna því hugtaki við "rétt kvenna til að ráða yfir líkama sínum", en í báðum tilvikum á hann eflaust við meintan rétt þeirra til að láta eyða ófæddum börnum sínum.
En það eru furðuleg kvenréttindi, sem fólgin ættu að vera í því að fá að eyða um eða yfir hálfri milljón ófæddra meybarna á ári hverju!
En að slá varnarmúr um fósturdeyðingar -- ekki hina ófæddu -- hefur verið eitt af helztu baráttumálum róttækra kvennahreyfinga sem hafa mótmælt valdatöku Donalds Trump í embætti Bandaríkjaforseta. Sjálfur hyggst hann hins vegar koma varnarlausum, ófæddum börnum til hjálpar. Ætti Árni Matthíasson að sjá sóma sinn í að styðja við það líknarverk.
En hér sjást afköst fósturdeyðingalæknanna í Bandaríkjunum frá 1973:
Sjá einnig hér, nýja frétt á Lifesite:
74% of Americans percent want to ban 2nd, 3rd trimester abortions: poll. (En Hillary Clinton og Barack Obama voru bæði hlynnt fósturdeyðingum á þessum síðustu tveimur af þremur þriðjungum meðgöngunnar, þar með talið vildu þau áfram leyfa "partial birth abortion"!).
![]() |
Trump gagnrýnir mótmælendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2016 | 12:32
Sverð fundið frá 10. öld í Skaftártungu
Þetta er stórfrétt, en sennilega er sverðið og aðrir munir hluti gamals kumls; landbrot hafði átt sér stað þarna við síðasta Skaftárhlaup, nærri hraunbrún sem jafnvel hefur hulið þetta á sínum tíma, en hreinsazt af.
Þetta er eitt tuttugu sverða sem fundizt hafa hér frá söguöld. Það er komið í fulla rannsókn hjá starfsfólki Minjastofnunar, sem annast mál Þjóðminjasafns, en sverðið er að mestu í góðu ástandi.
![]() |
Fundu sverð frá tíundu öld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)